Elfa í Flensburg
05.08.2008 22:06:01 / ebh1910

Prinsinn mættur

Já litli gullmolinn okkar er mættur á svæðið og er sko biðarinnar virði. Viktor Bjarki Einarsson fæddist 23:28 á laugardagskvöldið, var 4080 g og 54 cm og alveg hreint æðislegur og geta foreldrarnir ekki hætt að horfa á þetta litla kraftaverk. Komum heim af fæðingardeildinni í dag, fæðingin gekk mjög vel og allt í lukkunar velstandi. Stofnuðum heimasíðu áðan og er slóðin barnarnet.is/vbe.

Stutt blogg í þetta skiptið, móðirin þarf að fara að sinna gullinu sínu

Tjuuus EBH


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.08.2008 09:21:02 / ebh1910

01.08.08

Neibb prinsinn hefur ekki látið sjá sig enn, en ég hef trú á að hann komi í dag, verður maður ekki alltaf að vera jákvæður..... Hef svo sem ekkert annað að segja, pabbi og Valur koma í dag, þannig að það verður verslunarmannahelgar stemning há okkur um helgina. Skemmtið ykkur vel um helgina og gangið hægt um gleðinnar dyr.

Tjuus EBH


» 39 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 10:43:40 / ebh1910

Settur dagur....

Jebb settur dagur í dag og það er nákvæmlega ekkert að gerast, fór til doksa í morgun og hann sagði mér bara að vera þolinmóð, krílið kæmi þegar það er tilbúið. Það er bara frekar erfitt að vera þolinmóður í 30 stiga hita, þegar lappirnar á manni eru eins og leirklumpar í laginu út af bjúgi og maður sefur sama og ekkert á næturna vegna þyngsla á innyfli sem valda því að maður á erfitt með að anda.... En annars er kellan bara hress og jákvæð..... Skil núna þær konur sem mér fannst bara vera að "væla" í lok meðgöngu, skildi aldrei þetta kvart á þeim, yfir svefnleysi og hinum og þessum kvillum sem hrjá mann í lok meðgöngu. En nú er ég algjörlega komin í þennan hóp og vel það, ætli ég verði ekki eins og Rachel í Friends þegar hún var komin fram yfir, afskaplega geðgóð og hress, þolinmæði hefur jú aldrei verið mín sterkasta hlið....

Annars er búið að skipta út ömmu gömlu fyrir mömmu gömlu, mútta kom á föstudaginn og á ekki pantaðan miða til baka, sem er kannski eins gott þar sem krílið er ekkert á þeim buxunum að láta sjá sig alveg strax.Þannig að dekrið heldur bara áfram, bakað og nuddað og allt gert til að gleðja kelluna.

Sú hressa kveður að sinni EBH

» 13 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 10:55:03 / ebh1910

Ekkert nýtt

Hef voða lítið að segja svo sem, kellan ennþá ólétt og lítur út fyrir að ég verði það eitthvað áfram. Vorum í skoðun í morgun og það hefur ekkert breyst síðan í seinustu skoðun, lilli litli getur sem sagt komið hvenær sem er, en getur einnig látið bíða eftir sér, sem er náttúrulega mjög lógískt ;) Þannig að það er ekkert annað að gera en að bíða bara, reyna að hvíla sig og hafa það huggulegt. Amma búin að vera í viku í heimsókn hjá mér og er það búið að vera mjög ljúft, aldeilis búin að dekra við kelluna, það er nuddað á hverjum degi, annað hvort táslur eða herðar, bakað og meira að segja skúrað og kellan gerir ekki neitt. Jafnvel bara að maður ráði þá gömlu í vinnu fram að hausti, voða þægilegt að þurfa ekki að gera neitt og fá nudd. Sú gamla fer heim á morgun en kellan þarf ekki að örvænta, mútta kemur á föstudaginn og ég geri fastlega ráð fyrir að dekrið haldi áfram þá.... ha mamma er það ekki.... vona bara að lilli litli láti sjá sig sem fyrst svo mútta og valur og pabbi geti eitthvað leikið við hann þegar þeir koma 1. ágúst.

Jæja læt heyra í mér sem fyrst aftur, vonandi með sjóðandi heitar fréttir.

Takk fyrir allar kveðjurnar, gaman að sjá hvað margir eru að fylgjast með :)

» 16 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 09:32:08 / ebh1910

Allt með kyrrum kjörum

Já ekkert farið að gerast enn, þrátt fyrir að læknirinn væri viss um að drengurinn kæmi fyrir settan dag og að hún myndi örugglega ekki sjá okkur í næstu skoðun, sem er á mánudaginn. En það er aldrei að vita, hvað gerist á næstu dögum, Valur brósi er búinn að veðja á morgundaginn og pabbi heldur sig staðfastlega við 08.08.08 bara út af dagsetningunni, hún er svo töff sjáið þið til. Vona innilega að pabbi verði ekki sannspár, er ekki alveg að nenna að bíða svona lengi eftir krílinu. Væri helst til í að fá lilla í hendurnar efftir helgi, Einsinn er nefninlega núna í æfingarferð í Sviss og þyrfti að keyra í 5 tíma ef allt færi af stað, þannig að sunnudagurinn eða mánudagurinn væru góðir. En þessi kríli eiga víst rétt á sínum 40 vikum, eins og tengdó segir, er nú samt komin með nóg, sef orðið ekki neitt, eitthvað erftitt að slökkva á hausnum þegar á að fara að sofa og síðan vakna ég í hvert einasta skipti sem ég sný mér og það er sko oft get ég sagt ykkur. En þetta styttist.... vonandi...

Annars er amma í heimsókn hjá mér núna, ákvað að skella sér út og vera hjá mér á meðan Einar er í burtu, hefði ekki viljað vera ein, ef eitthvað gerist. Við höfum það afskaplega huggulegt, sólum okkur þegar sólin er, spókuðum okkur um í bænum í gær og prjónum eins og óðar séum. Kellann byrjuð á peysu nr. 2 á krílið, hvorki meira né minna.

Takk fyrir allar kveðjurnar, gaman að fólk sé að fylgjast með manni í baráttunni ;) Læt vita um leið og eitthvað gerist... eða svona næstum því.

Tjuus EBH


» 15 hafa sagt sína skoðun

11.07.2008 15:24:49 / ebh1910

Þetta styttist.... vonandi

Jæja kominn tími á nýtt blogg og nóg er nú að segja frá, stikla bara á stóru:
- Kellan var í mánuð á klakanum og var það æðislegt eins og alltaf, tíminn var vel nýttur og reynt að hitta alla, held að það hafi tekist.
- Kom til Grossó 20. júni og þá var elsku besti Einsinn minn búinn að ná í allt dótið okkar í Flens og búinn að flytja það í nýju íbúðina okkar, með hjálp flutningakallanna, very næs.
- Nýja íbúðin er rosa fín, hálfgerð penthouse íbúð með geggjuðum svölum sem hægt er að sóla sig í allan daginn. Vorum viku að koma okkur fyrir, kellan ekki alveg jafn snör í snúningum þessa dagana, tek pásur til að leggja mig og svona.
- Fórum í skoðun hjá nýja lækninum um leið og við komum hérna og þá kom það bara í ljós að lítill prins er á leiðinni en ekki lítil prinsessa. Frekar fyndið hún spyr okkur á meðan hún er með sónartækið á mér hvort við vitum kynið, við alveg "já þetta á að vera stelpa" og hún bara "neiiii ég sé nú typpi hér....." frekar fyndið. Sem  betur fer vorum við ekki búin að kaupa neitt bleikt og mamma bara rakti upp það sem hún var búin að prjóna í bleiku og keypti bláan lit, ekki mikið mál.
- Ég hafði rétt fyrir mér með hitann, búið að vera alveg rosalega heitt hérna, hefur meira að segja farið upp í 34 gráður, sem fór nú alveg með kelluna. Gat ekki hreyft mig þá daga. Þannig að kellan spókar sig um á nærbuxunum og hlýrabol hérna heima alla daga, mjög girnilegt :)
- Lífið þessa dagana gengur út á lítið annað en að bíða, Einsi handyman, dundar sér hérna heima fyrir, búinn að mála barnaherbergið, stofuna og listana inn í stofunni, ekkert smá duglegur þessi elska. Á meðan liggur kellan bara í sófanum og skipar fyrir eins og einhver prinsessa. Er nú samt búin að þvo öll barnafötin og það er búið að setja upp barnarúmið. Doksinn spurði okkur nefninlega í seinustu skoðun hvort við værum ekki örugglega búin að pakka í töskuna og gera allt tilbúið, því prinsinn gæti farið að láta sjá sig hvað úr hverju. Það er víst allt að verða tilbúið þarna niðri.... Ég tek því nú samt með fyrirvara, nenni ekki að vera að spenna mig upp og ganga síðan fram yfir.
Jæja þetta er svona það helsta sem á daga okkar hefur drifið, reyni að blogga reglulega núna og auðvitað að búa til síðu fyrir prinsinn þegar við erum komin með betra net.
 
Tjjuus EBH

» 10 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 10:58:46 / ebh1910

Seinasta vikan

Jebb seinasta vikan hér í Flens byrjuð og ekkert annað gert en að klára ritgerðir, pakka smá, reyna að hitta alla og sóla sig að sjálfsögðu. Ótrúlegt alveg að þetta tímabil sé að enda komið og nýjir tímar að taka við. Veit ekki alveg hvernig við höndlum það að vera svona langt í burtu frá Eivor og co, vil helst bara ekki hugsa um það.... En svona er lífið og handboltinn og því ekkert annað að gera en að hugsa til nýrra ævintýra og betra gengis.

Fórum til Ribe og Odense um helgina, kíktum á túlipanafest í Ribe og kvöddum Tryggva, Haffa og Ingibjörgu, brunuðum síðan til Snorra, Marínar og Bjarka á sunnudeginum. Jiiii hvað hann er sætur, núna er maður ekkert smá spenntur að sjá litla krílið okkar. Hann var eins og ljós allan daginn, bara hló og brosti til skiptis, var væntanlega að reyna að heilla tilvonandi tengdaforeldra upp úr skónum, sem tókst og vel það. Eigum 100% eftir að sakna allra vina okkar á næsta ári, búið að vera alveg geðveikt að hafa allt þetta skemmtilega fólk svona stutt frá okkur, alveg frábært að eiga svona góða vini. Áður en fólk ælir af væmninni þá skal ég tala um eitthvað annað.....

....eins og veðrið, veit að ég er alltaf að tala um góða veðrið hérna, en shit maður hvað það er búið að vera heitt. Ekki nóg með það að maður sé eins og hvalur, enn verra að vera sveittur hvalur alla daga, gjörsamlega að kafna úr hita. Já það er frekar erfitt að vera óléttur í þessum hita, er alltaf að vakna á næturnar, hendi sænginni af mér og reyni að kæla mig niður. Býð ekki í það hvernig þetta verður í Grossó seinasta mánuð meðgöngunnar, það er aðeins heitara þar en hér, þannig að kellan verður mjög líklega að fjárfesta í barnasundlaug, fylla hana af klökum og liggja bara þar fram að fæðingu. Örugglega mjög huggulega að sjá það.....

Tjuus EBH

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 21:30:23 / ebh1910

Sólar samba

Lítill tími til bloggs undanfarið vegna sólbaðs og annarar skemmtunar sem einkennir 22 stiga hita. Jebb búið að vera geggjað veður alla vikuna og á víst að haldast fram yfir helgi sem er ekki slæmt, þar sem halda á, í stórborgina Ribe á Túlipana fest. Þar ætlum við að hitta fyrir systurnar Tryggva og Haffa, ásamt Ingibjörgu, Árnýju, Fannar og að sjálfsögðu Dag Leó. Verður að taka eitt gott slútt áður en allir halda í sit hvora áttina. Enda keppist fólk við að hitta okkur, vorum boðin í mat á þriðjudag og erum aftur boðin í á mat á föstudaginn, greinilegt að okkar verður sárt saknað hérna....

Annars er kellan að basla við að klára 2 ritgerðir sem skila á í næstu viku, er reyndar ekki alveg að nenna að hanga inni og skrifa ritgerðir á meðan veðrið er svona. Maður gerir bara sitt lítið af hvoru, smá sólbað og smá ritgerðarskrif, þá ætti þetta allt að reddast.... Siðan verður náttúrulega að reyna að koma pökkun inn í bissí sólbaðsdagskrá. Þurfum reyndar ekki að pakka miklu, eiginlega bara fötunum og síðan sjá flutningamennirnir um hitt. Höfum reyndar ekki fundið hús enn í Grossó, þannig að það er nóg að hugsa um þessa dagana.... ég er ekki bara í sólbaði.....

Af krílinu eða 80% stelpunni er það að frétta að hún er farin að þrýsta oftar á rifbeinin á móður sinni sem er frekar skrítin tilfinning og ekkert sérstaklega þægileg. Þá er bara að ýta niður og vona að hún færi sig. Annars er hún ekki mikið að sparka, lítur allt út fyrir að þetta verðir rólyndis stelpa eins og mamma sín....

Við þökkum fyrir góðar ábendingar um nöfn, þetta eru allt góð og gild nöfn sem verða tekin til frekari endurskoðunar..... sérstaklega Valfríður.... þar sem afa tókst ekki að fá mömmu og pabba til að skíra mig Valfríði.... skil það bara ekki.... verður gaman að sjá hvaða pressu hann beitir okkur :)

Tjuus EBH

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 21:01:56 / ebh1910

I'ts a girl...

Jæja héðan úr vorfílingnum er allt gott að frétta, ég og Eibban tókum svaka dekurdag í dag, fórum í eitthvað wellnes í Danmörku og var það alveg geggjað. Eibban fór í eitthvað tyrkneskt bað og bumban fór í andlitsbað og nudd, dúlluðum okkur síðan í spa-inu, fórum í heita pottinn, syntum aðeins, lágum í sólbaði og tjilluðum. Bráðnauðsynlegt alveg í öllu stressinu hérna.....

Vorum síðan í sónar í gær, þ.e. ég og Einsinn (ekki Eibban) og þó svo að rassinn á krílinu hafi verið fyrir, þá var doksinn 80% viss um að lítil prinsessa væri á leiðinni. Okkur hefur einmitt alltaf fundist þetta vera stelpa þannig að við erum nokkuð viss. Kellan ætlar allavega að kaupa eitthvað bleikt í Aarhus um helgina. Ég og Eibban ætlum að bruna til Hröbbu og co á morgun og vera fram á laugardag, alveg komin tími á það.....

Tjuus EBH

» 18 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 19:38:14 / ebh1910

Helgin

Hrikalega góð og sumarleg helgi á enda, passaði Lúksann í gær á meðan foreldrarnir voru í bolta sprikli. Brölluðum ansi mikið, byrjuðum á því að baka eitt stykki skúffuköku, drengurinn búinn að vera með cravings í skúffuköku frá Elfu alla vikuna og því lítið annað í stöðunni en að baka eitt stykki fyrir drenginn. Hjóluðum síðan út í búð og fórum út á leikvöll. Enduðum síðan góðan dag á Mc Donalds og í kósí heitum upp í sófa að horfa á þýska idolið, reglulega skemmtilegur dagur með skemmtilegasta stráknum. Dagurinn í dag var ekki síðri, byrjuðum á því að fara í brunch niðri í Flensburg og var það himnaríki fyrir óléttu konuna, endalaust úrval af allskonar gúmmelaði og gúffað eftir því.... stefnan tekin þangað aftur áður en við flytjum. Röltum síðan aðeins um í bænum og enduðum síðan í sólbaðið í garðinum hjá Eivor og Alex í 20 stiga hita. Buðum þeim í mat og grillaði Einsinn 3 tegundir af kjúklingabringum, hvorki meira né minna og klikkuði það sko ekki. Jebbs massa góð helgi að baki, sem einkenndist af miklu áti og sumarfíling.

Tjuus EBH

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 13:54:52 / ebh1910

Síðasti vetrardagur

Já svei mér þá ef sumarið í það minnsta vorið sé ekki komið hérna í Þýskalandinu, fínasta veður búið að vera hér undanfarna daga og meira að segja mjög gott veður í dag, sól, smá vindur og 15 stiga hiti. Við skötuhjú erum aldeilis í sumarfíling, hér er grillað á hverju kvöldi og fer Einsinn hamförum á grillinum, þvílíkur meistarakokkur sem drengurinn er orðinn. Einsinn er líka afskaplega glaður þessa dagana, hinn langþráði BMW kemur í hús á morgun, eftir aðeins 12 vikna bið, ótrúlegt hvað allt tekur langan tíma hérna. Geri ráð fyrir að það verði eitthvað rúntað á morgun, drengurinn í ermalausum bol og með nýju Prada gleraugun, já hann er sjóðheitur drengurinn.

Af kellunni er allt gott að frétta, var að skila ógeðs heimaprófi í Orð og hljóði áðan og þá á bara eftir að rumpa 2 ritgerðum af og kellan komin í sumarfrí fram að næstu jólum, já eða svona næstum því. Ætla bara að vera í 1 áfanga á næsta ári, nóg að stússast með litla krílið okkar og nenni ekki að stressa mig í skólanum.

Jæja ég er farin út í sólina, verð að reyna að ná Einsanum í taninu....
Tjuus EBH


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 16:08:34 / ebh1910

Friday again

Já já bara enn og aftur komin helgi og vika síðan seinast var bloggað. Kellan er reyndar búin að vera rosa bissí þessa vikuna. Mamma, amma og Björg komu hérna á laugardaginn og fóru síðan í gær. Alltaf jafn gaman að fá þær kellurnar í heimsókn og einkenndist vikan af miklum kaupum, hvort sem var á kellurnar eða krílið, prjónaskap, áti og hlátri, alveg eins og þetta á að vera. Þið eruð alltaf velkomnar elskurnar mínar. Einsinn líka ánægður að fá þær, þarf ekki að lyfa fingri þegar þær eru hérna og það liggur við að þær mati hann, svo mikið keppast þær um að stjana við drenginn. Eftir þær liggur líka prjónadótið í bílförmum... liggur við, amman búin að prjóna peysu og sokka og langa sokka, síðan er mamman að rembast við að prjóna peysu á krílið... gengur ekki sem skildi, er alltaf að gera vitlaust í helv.. munstrinu. Ég hef svo sem tíma, peysan á að vera á 6 mánaða kríli, þannig að þetta mun vonandi nást fyrir þann tíma.Er nú reyndar búin með húfu......

Náðum að kaupa slatta af dóti fyrir krílið og held ég bara að allt það nauðsynlegasta sé komið, erum búin að kaupa vagn og bílstól, fór síðan með kellunum og í baby sam og keypti þar rúm og dýnu, náttgalla og annað dót sem svona kríli þurfa á að halda. Ekkert smá fegin að vera búin að þessu áður en við flytjum og þurfa ekki að vera að stressa sig á því að kaupa þetta þegar við komum aftur út í júní, þá þarf að koma sér fyrir í nýja húsinu.

Hitt krílið mitt (Einsinn) fékk líka pakka í vikunni, fjárfesti í rosa flottu Weber gasgrilli og er búið að fíra upp í kvikindinu, elduðum dýrindis nautasteik fyrir kellurnar, íslenskar SS pullur í gær og í kvöld á að elda BBQ pinna. Ummmm jafnast ekkert á við grillmat og grilllykt. Enda sumarið á næsta leyti og við komin á klakann góða eftir mánuð.

Já lesendur góðir svona er Þýskaland í dag.... Tjuus EBH

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 19:14:37 / ebh1910

Leiðist og langar í ís....

Einsinn að horfa á fótboltann, kellan búin með bloggrúntinn og ekkert að gera.... Ætlaði að vera dugleg og halda áfram með peysuna sem ég er að byrja að prjóna á krílið, en er föst og þarf á hjálp að halda, verð því að bíða eftir ömmu sem kemur á laugardaginn. Jebbb mamma, amma og Björg eru að koma í húsmæðraorlof og verða fram á fimmudag, voða gaman að fá þær kellur, ætli maður dobbli þær ekki með sér í einhverjar barnabúðir, þurfum að fara að huga að barnadóti, vagni, bílstól og svoleiðis stöffi. Langar nebblega ekki að vera að stressa mig á þessu þegar ég kem aftur út í sumar, þá þarf að taka upp úr kössum og koma sér fyrir á nýja staðnum.

Kellan er búin að vera eitthvað slöpp undanfarið, massa hálsbólga, stíflað nef og almennur slappleiki er ekkert spes, hangi því bara hérna heima og legg mig, ásamt því að læra, jebb rosa mikið að gerast hjá kellunni þessa dagana. Jæja best að hætta þessu bloggi núna, áður en ég fer að væla og kvarta meira, kem með hressara blogg síðar.

Tjuus EBH

» 7 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 12:10:18 / ebh1910

Fösudagsfílingur

Já já enn og aftur komin helgi og er það alls ekki slæmt. Fínasta vika að líða, þó ekki hafi verið neitt sérlega mikið brallað. Einsinn fór til Nordhorn á þriðjudaginn, keppti á miðvikudaginn og kom heim um nóttina, kellan er hins vegar búin að eiga quality time með Lúksanum sínum, maður verður að nota hverja einustu mínútu með drengnum áður en við flytjum. Passaði hann bæði miðvikudag og fimmtudag og brölluðum við mikið, hann kenndi mér að púsla, rústaði mér í sjómann og memory, og þá er ég ekki að grínast með memory-ið, hann tók mig í nefið þar. Í gær fórum við síðan í hjólatúr, lékum okkur í leiktækjunum og köstuðum steinum út í vatnið, já já mega fjör hjá okkur. Toppuðum síðan daginn í gær og bökuðum pítsu saman.

Af bumbunni er allt gott að frétta, kellan komin 24 vikur sem þýðir 6 mánuði, fyrir þá sem ekki eru með vikurnar á hreinu sem aftur á móti þýðir að 2/3 af meðgöngunni eru búnir. Ótrúlegt alveg hvað þetta er fljótt að líða og verðum við skötuhjú orðin foreldrar áður en við vitum af, úfff maður svitnar bara á efri vörinni við að lesa þetta. Fór í skoðun á mánudaginn og allt lítur voða vel út, nema kannski vigtin, er komin í tölu sem ég hef aldrei á ævinni séð áður, en maður kvartar ekki :) Förum aftur í sónar 30. apríl og vonandi að krílið sýni sig þá svo við getum eitthvað farið að spá í nöfn og svona, ekki seinna vænna þar sem kellan er óákveðin með meiru. Bumbumyndirnar fara að streyma á netið, þegar ég er búin að taka þær, hef verið voða löt að taka myndir en vonandi breytist það :)

Tjuus EBH

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 18:45:25 / ebh1910

Helgin

Kellan komin heim í heiðardalinn og er það alltaf  jafn ljúft og hvað þá eftir ógeðs ferðalag, díses 3 tímar í flugi og 4 í lest eru ekki beint skemmtilegt ferðalag hvort sem maður er óléttur eða ekki. Svolítið erfitt að yfirgefa klakann í þetta skiptið, hormónarnir eitthvað að stríða kellu, en það er svo sem ekki langt í að maður komi aftur, einn og hálfur mánuður rúmlega.

Helgin var skemmtileg hjá okkur hjúum, leikur á föstudaginn þar sem Flens vann góðan sigur á Gummersbach. Einsinn minn átti síðan afmæli í gær, TUTTUGU og SEX ára drengurinn og var haldið upp á það með pompi og prakt. Kellan sveitt í eldhúsinu í gær að útbúa alls konar smá rétti fyrir afmælið, fékk góða aðstoðu frá Árnýju við það. Buðum síðan liðinu og einhverju fleira fólki. Mjög skemmtilegt afmæli og mikið drukkið, mjög mikið. Liði kíkti síðan í bæinn kl. hálf 5, en þá höfðum við tapað einum tíma, sumartíminn sem sagt kominn á hér, frekar fyndið að vera vakandi þegar það gerist. Kellan var nú nokkuð þreytt eftir hamaganginn um daginn og kvöldið og var dauðfegin þegar ég gat loksins lagst upp í rúm. Skemmtilegt verkefni beið okkar síðan þegar við vöknuðum, skrúbba allt heimilið hátt og lágt, gólfið var gjörsamlega ógeðslegt. Síðan var sófinn bara tekinn á þetta seinni partinn og fara á í rúmið snemma. Bíður mín síðan lærdómur alla vikuna. Já já líf og fjör krakkar mínir

Tjuus EBH

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18